Það var svo heitt hérna í gær bæði með og án sólar að það var gjörsamlega að drepa mig... en það er sko bara allt í lagi, ég elska svona veður samt
Pallasmíðin skotgengur og loksins fann ég aðferð til að hægja svolítið á honum gamla mínum... að vísu algerlega dauðóvart...
Ég hafði ekki tíma til að bera á 10 síðustu gólffjalirnar í gær vegna útréttinga, vinnu og vinnufundar og harðbannaði honum líka að snerta á penslinum "mínum" á meðan ég væri í kvöldvinnunni, svo það var sjálfhætt fyrir hann og það á nokkuð skikkanlegum kvöldmatartíma
Gólfið klárast í dag og þá er næsta mál á dagskrá að æða út í Húsasmiðju og kaupa efnið í veggina... það er kominn júlí og ef við viljum geta gert eitthvað með þennan pall í sumar annað en bara að smíða hann, ja þá er bara að halda áfram. Ég verð í fríi komandi helgi líka, langt langt langt síðan ég hef haft tvær fríhelgar í röð og mér finnst það æðislegt
Ég er búin að vera svo mikið úti undanfarið að bera á timbur að ég er ekki frá því að ég geti, með jákvæðu hugarfari og góðum vilja greint smá brúnan lit á andliti og handleggjum... eða kannski er það bara fúavörnin...
En hvernig getur það passað... ég sem nefnilega sulla ekki þegar ég er að mála
Ég æddi um lóðina okkar á mánudaginn og úðaði með fíflaeitri... morguninn eftir þegar ég leit út um gluggann sá ég að þeir voru flestallir farnir að lúta höfði... mér fannst það smá stund bara sorglegt... þetta var mér að kenna... en ég segi ekki nokkurri manneskju frá því að mér hafi liðið svona... það mundi nefnilega gjörsamlega eyðileggja "kúlið" mitt
Ferlega góð inn í þennan frábæra dag og sé fram á sumarfrí annan mánudag 13.júlí, alveg í heila viku
Farið vel með ykkur elskurnar mínar og munið að stundum er vilji allt sem þarf
Flokkur: Bloggar | 2.7.2009 | 08:16 (breytt kl. 08:17) | Facebook
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Feb. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kveðja til þín ljúfan.Var á Akureyri fyrir ári síðan sælla minninga og vildi gefa mikið að vera þar núna.Bestu kveðjur í brúnkustörfin á pallaefninu og þér:)
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 09:12
Gott að vita að það er skítsæmilegt veður þarna fyrir norðan. Egill okkar og fjölskyldan litla frá Prag er núna í slotinu sínu á Grenivík. Ef þú skildir rekast á þessa krakka á gangi þá bið ég að heilsa........ heheh....
Ía Jóhannsdóttir, 2.7.2009 kl. 09:30
Þú ert alger kúlisti, það er löngu ljóst
Birna Dúadóttir, 2.7.2009 kl. 10:32
Ragna mín: Bestu kveðjur til þín líka mín kæra
Ía mín: Ég skal sannarlega skila kveðju frá þér ef ég rekst á þau
Birna mín: Hurrðu er þakki bara ?
Jónína Dúadóttir, 2.7.2009 kl. 12:34
Þú ert bara eins og Rolo súkkulaði - hörð að utan en mjúk að innan Fegin að ég er ekki sú eina sem er lítið fyrir sólböð
, 2.7.2009 kl. 23:59
Dagný mín: Mér líkar vel að vera líkt við Rolo súkkulaðiÞetta með sólböðin sko... gott að vera ekki mikið að pæla í þeim núna, það mígrignir
Jónína Dúadóttir, 3.7.2009 kl. 06:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.