Núna erum við búin að smíða gólfið á pallinn okkar og byrjuð að skrúfa veggfjalirnar áSet inn myndir á eftir ef ég má vera að, sökum anna... ég er svo agalega upptekin við að vera í öðru helgarfríinu mínu í röð...
Skuggalega langt síðan þær hafa verið tvær í röð, en lagast seinna í sumar þegar kemur að mér að fá sumarfrí
Planið í dag er að fara út og slá lóðina og gera ekki mikið annað frekar en venjulega... jú kannski halda við nokkrar spýtur og skrúfa kannski í nokkrar... jú og kannski úða lóðina aftur með fíflaeitrinu, náði nefnilega ekki alveg öllum þarna um daginn
Jú svo langar mig í kjúkling í kvöldmatinn og ætla að láta það eftir mér og kannski þrífa bílinn minn og húsið... Ja hérna og ég er í helgarfríi... ?
Sko líklega og eiginlega vonandi, enda ég bara sitjandi einhversstaðar úti í góða veðrinu og hreyfi mig ekki spönn úr rassi, ég er nefnilega orðin svo þreytt á allri þessari upptalningu...
Spúsi og Súkkujeppinn hans hans gáfust loksins upp á hvor öðrum í gær... það er ekki einu sinni hægt að keyra hann á milli hverfa í þessum ekkert voðalega stóra bæ, án þess að það fari að koka í honum... sko jeppanum, svo það er líklega komið að því að gera smá hlé á pallasmíði og snúa sér að smá bílaviðgerðum svo sem eins og eina helgi eða svo... svo þarf líka að kíkja á jeppann minn fyrir skoðun, hann þarf svo sannarlega ekkert að kvarta yfir verkefnaskorti í helgarfríunum sínum sko
Vona innilega að ykkur öllum líði eins vel og mér inn í þennan fína laugardag og óska öllum góðrar helgar
Prentvillupúkinn hérna vill ekki samþykkja "Súkkujeppi", vill frekar hafa "Dúkkujeppi"
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þið eruð svo dugleg!!! Og svo er alveg rosalega fallegt heima hjá ykkur!
Jóhanna Pálmadóttir, 5.7.2009 kl. 10:52
já, bara dugleg

María Guðmundsdóttir, 5.7.2009 kl. 18:29
Jóka mín: Takk elskan, þú verður að drífa þig að KOMA og sjá það

María mín: Já ógisslega dugleg... svo er þetta svo gaman

Jónína Dúadóttir, 6.7.2009 kl. 06:22
Ég er að safna fyrir miða heim
Planið er að geta komið um páskana á næsta ári, þá á að ferma litlu systur mína og þá verð ég náttúrulega að reyna að koma við hjá öllum hinum líka 
Jóhanna Pálmadóttir, 6.7.2009 kl. 10:55
Mikið svakalega er þetta flott hjá ykkur
Ekki bara pallurinn heldur finnst mér tröppurnar algert æði
Langar í svona tröppur.
Hmmm dúkkujeppi???
, 7.7.2009 kl. 00:03
Jóka mín: Sjáumst á næstu páskum

Dagný mín: Sammála þér með tröppurnar, ég er svakalega ánægð með þær
Já veit að gamli minn samþykkir ekki þetta með Dúkkujeppann
Jónína Dúadóttir, 7.7.2009 kl. 07:49
Og þarna kemur hann Jói á Dúkkujeppanum
Passar svo vel saman
Skoða bílinn, hvað er nú það, ég er ein af þeim sem gleymi svoleiðis, líklega viljandi 
Birna Dúadóttir, 7.7.2009 kl. 08:54
Skoða hvað, frímerki, myndaalbúm
kem samt að skoða pallinn, Ninnu og Jóa á Dúkkujeppanum
Erna Evudóttir, 7.7.2009 kl. 12:39
Birna mín: Iss Jói glottir bara að þessu
Þú getur auðvitað bara skoðað bílinn þinn sjálf... hvernig hann er á litinn og í laginu og solleiðis
Erna mín: Alveg rétt... skoða pallinn og mig og dúkkubílstjórann... miklu skemmtilegra
Jónína Dúadóttir, 7.7.2009 kl. 18:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.