Enginn tími til að vera í tölvu...
Alltaf að gera eitthvað allt annað... sem er gaman, það er líka sumar krakkar mínir
Hún er líka orðin eitthvað lasin blessunin... tölvan sko... svo agalega sein og svo er vírusvörnin að renna sitt síðasta... veeeerð að muna að hringja í tölvukarlinn í dag ! Ég á að vísu líka ferðatölvu, en mér leiðist hún
Það er smárigning og einhver vindur úti núna, ég er mjög sátt við rigninguna... hún er allt of sjaldséður gestur hérna. Helst hefði ég viljað fá mígandi rigningu og almennilegt rok og það er algerlega í eiginhagsmunaskyni... þá er ég ekkert að taka tillit til annarra...
Grasið á lóðinni er með ljósbrúnum blæ af þurrki þess vegna vantar mig mígandi rigningu og fræin af risaöspinni okkar hérna við húsvegginn eru endalaus... mig vantar rok til að hrista þau bara í eitt skipti fyrir öll niður af þessum glæsilega risa þarna ! Það er bara ekki meiri rigning en svo að það er þurrt undir trjánum, þau eru allt of góðar regnhlífar... um vindinn veit ég lítið... er ekki farin út ennþá, en trén hreyfast nú eitthvað
Annars er ég ekkert fúl út af öllum asparfræjunum... þetta er síðasta sumar þessa falleg risa... Þegar sonur minn var að snyrta hana til fyrir okkur í vor sá hann að hún er farin að fúna innan frá... hún verður felld á næsta ári
Ferlega góð inn í þennan fína dag... skapið mitt fer ekki eftir veðri eða vindum, það fer eftir því hvernig ég ákveð að hafa það þegar ég vakna að morgni... gamall og góður vani sem hefur hjálpað mér í gegnum ýmislegt í gegnum árin
Vona að þið eigið í vændum yndislegan dag, í öllum veðrum... við skjáumst....
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Feb. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er eins og þú, ákveð bara að vera í góðu skapi og glöð, allavega þangað til annað kemur í ljós. Eigðu ljúfastan dag.
Ásdís Sigurðardóttir, 23.7.2009 kl. 11:19
Hafðu það gott Ninna mín, við sjáumst líka vonandi. Var búin að plana pallapartý um helgina með ykkur vinkonum mínum en sem betur fer er Hóffa held ég á leið til Köben, þar sem veðrið henta illa í slíkan gjörning, en koma tíma og koma ráð
Sigríður Jóhannsdóttir, 23.7.2009 kl. 13:15
Ásdís mín: Það virkar yfirleitt mjög velEigðu líka ljúfan dag mín kæra
Sigga mín: Sömuleiðis ljúfan mínÞað er alveg kominn tími á pallapartý sko... en eins og þú segir... ekki veður til þess þessa helgi og ég upptekin sem grúppía á Breiðumýri, en Hóffa að gera eitthvað miklu skemmtilegra
Jónína Dúadóttir, 23.7.2009 kl. 14:28
María Guðmundsdóttir, 23.7.2009 kl. 17:52
, 23.7.2009 kl. 21:13
Það er einmitt undir okkur sjálfum komið að ákveða hvernig við höfum daginn, svona í flestum tilfellum allavega.
Njóttu sumarsins - í öllum veðrum
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 28.7.2009 kl. 12:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.