Þessi kona sem hér skrifar er búin að vera frá vinnu í alveg 3 og 1/2 dag og er við það að missa alla þolinmæðina sem hún fæddist með og góðan slatta af þeirri sem hún hefur þroskað með sérVar eitthvað svo ömurleg... slöpp með svima, bara hundeiðinleg og gat ekki hugsað mér að vagga um annars staðar en heima hjá mér... gat lítið gert hérna... eða svo ég segi alveg eins og er þá gerði ég ekkertVerst að önnur öxlin á mér hefur ekki haft gott af að liggja bara og gera ekkert... held hún sé ónýt... set nýja öxl á jólagjafalistann sem ég sendi jólasveininum... málið dauttOk ég veit að þrír og hálfur dagur er ekki rassg... margir eru veikari miklu lengur og sumum batnar aldrei... svo steinþegiðu góða mín ! Já ég skal þegja, enda orðin nógu hress til að treysta mér til að hjálpa skjólstæðingnum mínum úr og í rúm/i og stól, svo ég fer í vinnuna í fyrramálið... hvað sem tautar og raularÁ morgun eftir vinnu ætla ég svo að storma... lesist; klöngrast... upp á háaloft og sækja jólaskrautskassana mína.. loksins komið að þvíÉg ætla að setja seríurnar í gluggana svona smám saman næstu daga, bara þrífa þá fyrst og "elskudökkutrérimlagardínurnar" líka...Mér finnst flott að hafa þær og þær fara alveg ágætlega fyrir gluggunum... þangað til ég asnast of nálægt þeim með gleraugun á nefinu og sé rykið á þeim...En skítt og laggó, þetta er í síðasta skipti á árinu sem ég þarf að þrífa þær... það væri frábært að geta sagt það sama í janúarSvo geng ég líka frá lopapeysunum, gat ekki skolað úr þeim af því að baðherbergið var upptekið... fékk þá frábæru hugmynd að mála það... en nú er það búið og ég get farið að sulla þar aftur. Ég er komin með síðustu jólagjöfina á prjónana, hún þarf ekki að vera tilbúin fyrr en á jóladag svo ég er ekkert stressuð... fínt að prjóna þetta fyrir framan sjónvarpið... sofna þá ekki á meðan, held égHætti núna og óska ykkur góðrar viku
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Feb. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.2.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jóhanna Pálmadóttir, 22.11.2009 kl. 23:23
Djísus, kominn tími til að þú farir að gera eitthvað
Erna Evudóttir, 22.11.2009 kl. 23:48
Jóka mín: Sömuleiðis elskan
Jónína Dúadóttir, 23.11.2009 kl. 06:05
Erna mín: Já ég er að segja það...
Jónína Dúadóttir, 23.11.2009 kl. 06:06
Gott að þú ert að hressast. Ómögulegt að hafa þig einhvervegin öðruvísi Eigðu sömuleiðis góða viku gæskan
, 23.11.2009 kl. 07:31
Dagný mín: Mikið er ég sammála þérÞakka þér fyrir mín kæra
Jónína Dúadóttir, 23.11.2009 kl. 07:45
Farðu vel með þig.:)
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 23.11.2009 kl. 08:03
Þrír og hálfur dagur,ertekkiílagikona Sko, það eru meiri aumingjar en þú og svo framvegis En annars gott þú ert að hressast
Birna Dúadóttir, 23.11.2009 kl. 08:19
Ragna mín: Geri það vina mín... og þú líka
Jónína Dúadóttir, 23.11.2009 kl. 13:19
Birna mín: Nei ég var sko ekki í lagi og væri enn verri ef ég hefði ekki farið í vinnuna í morgunOg núna fer ég að láta jólaskreyta mig... sem sagt í plokk og lit...
Jónína Dúadóttir, 23.11.2009 kl. 13:22
Haha jólaskreyta þig, góður
Birna Dúadóttir, 23.11.2009 kl. 15:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.