Það var Þorláksmessa og ég átti bara eftir að pakka inn jólagjöfinni til eldri sonar míns og konu hans, en ætlaði að gera það um kvöldið, þau ætluðu að koma þá. Hann hringdi upp úr hádegi og sagði að þau mundu koma með jólagjöfina til okkar klukkan 5, hvort við yrðum ekki örugglega heima... við yrðum að vera heima klukkan 5... og litli bróðir hans sem enn bjó hjá okkur, hann yrði að vera heima líka, ég yrði bara að sjá til þess
Hvaða hvaða... það er naumast...
Þegar klukkan var alveg að verða 5 var ég ekki enn búin að pakka inn handa þeim en þá hringir hann... hvort við séum ekki örugglega heima og litli bróðir líka... þau séu á leiðinni með jólagjöfina... Ég er ekkert vön svona stressi og látum frá honum, fannst þetta líka algerlega ástæðulaust og hálf ergileg, tuðandi yfir krakkaskrattanum, æddi ég inn í herbergi og fór að pakka inn handa þeim... best að henda þessu þá í hausinn á honum fyrst honum lá svona lífið á
Og argaði á yngri soninn að hann færi ekkert strax úteftir til pabba síns með jólgjafirnar... brjálæðingurinn hann stóri bróðir hans væri að koma til að láta hann hafa jólagjöfina og hann væri greinilega mjög tímanaumur... hmprff...
Og ég hélt áfram að reyta jólapappírinn utan um gjöfina og festi límbandið á höndunum á mér og það gekk allt á afturfótunum af því að ég var að flýta mér í fússi...
Svo heyri ég einhver læti frammi og frumburður minn yndislegur stendur á arginu og skipar mér að koma fram og taka við jólagjöfinni... það var farið að sjóða á mér og ég þrammaði fram og ætlaði sannarlega að láta hann heyra það... en steinþagði bara og glápti í forundran á jólagjöfina mína sem stóð skælbrosandi fyrir framan mig og sagði "Hæ mamma"
Strákpjakkurinn og konan hans voru þarna komin með dóttur mína elskuna sem býr í Svíþjóð... höfðu boðið henni til landsins í nokkra daga yfir jólin og mig grunaði ekkert og þau skemmtu sér auðvitað alveg konunglega yfir þessu... ég var margbúin að tala við hana og senda henni jólagjafirnar og allt
Þetta er langbesta, flottasta og yndislegasta jólagjöf sem ég hef nokkru sinni fengið að öllum öðrum samt ólöstuðum... það er bara alls ekki hægt að gera betur en þetta
Ég sakna hennar alltaf og mundi glöð þyggja hana í jólagjöf á hverjum jólum, en eins og kerlingin sagði: "Jólin eru nú ekki á hverjum degi
Þarf ég eitthvað að taka það fram að ég fyrirgaf strák"skrattanum" fullkomlega fyrir frekjulætin ?
Bloggvinir
- jokapje
- rannug
- jonhans
- jogamagg
- ammadagny
- hneta
- asthildurcesil
- olapals
- heidihelga
- brylli
- juljul
- naflaskodun
- majaogco
- jyderupdrottningin
- ollana
- skrifa
- tofraljos
- stafholt
- ringarinn
- tigercopper
- engilstina
- himmalingur
- einari
- linka
- duna54
- unns
- skjolid
- kaffikelling
- heidamagg
- heidathord
- lehamzdr
- oliskula
- fjallkona1
- gattin
- sur
- hugskotid
Feb. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.2.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 07:38
Ragna mín: Takk fyrir innlitið
Jónína Dúadóttir, 17.12.2009 kl. 08:03
Erna Evudóttir, 17.12.2009 kl. 09:10
Það er ekki hægt að hugsa sér betri jólagjöf Haha, sé þig samt alveg fyrir mér að fjargverast yfir strákskrattanum
Sigrún Þorbjörnsdóttir, 17.12.2009 kl. 13:15
Erna mín: Þú þekkir kauða
Jónína Dúadóttir, 17.12.2009 kl. 18:44
Sigrún mín: Já þetta er sami strákskrattinn og hringdi í mig í dag og bauð mér með þeim hjónum og litlu dúllunum í Jólahúsið og í kaffi og kökur í Vín á eftir
Jónína Dúadóttir, 17.12.2009 kl. 18:46
Æ hvað ég væri til í svona jólagjöf Þau virka jafn yndisleg og þú börnin þín
, 17.12.2009 kl. 21:07
Dagný mín: Þakka þér fyrir þetta var virkilega fallega sagt
Jónína Dúadóttir, 17.12.2009 kl. 23:12
hahahaha..sé thig alveg fyrir mér sótrauda af pirringi ég hef lent i thessu saman..nema thad var afmæli og aldrei ætladi bródir minn ad koma..og ég saud af illsku yfir dónaskapnum..birtast thau hjónin svo seint og sidar meir..alltof seint i køkurnar..med hann pabba og frú med sér frá Islandi!! hélt ég myndi ekki ná mér....gaman ad thessu
María Guðmundsdóttir, 18.12.2009 kl. 08:53
María mín: Já hann var ógeðslega frekjulegur og ég þoli það ekkiÞað hefur verið gaman hjá þér.... eftir á... eins og hjá mér
Jónína Dúadóttir, 18.12.2009 kl. 11:33
Jóhanna Pálmadóttir, 18.12.2009 kl. 11:43
Jóka mín: Elska þig líka
Jónína Dúadóttir, 18.12.2009 kl. 16:14
ég er ef til vill óvenjulega viðkvæm, en við þennan pistil renna tárin mín niður kinnarnar. Mikið get ég skilið gleðina þína Jónína mín. Svo innilega.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.12.2009 kl. 22:54
Ásthildur mín: Þá erum við það báðar, ég get aldrei sagt frá þessu eða skrifað um þessa yndislegu uppákomu, án þess að tárast
Jónína Dúadóttir, 19.12.2009 kl. 07:29
Góð!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Og hann góður betri bestur strákrasskatið þitt hehehehe
Ía Jóhannsdóttir, 19.12.2009 kl. 15:45
Ía mín: Segðu
Jónína Dúadóttir, 19.12.2009 kl. 16:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.