Hef ekki í nokkur ár kunnað almennilega...

... að meta veturinn, en núna finnst mér bara í góðu lagi að hafa hann...Wink Enda ekki við veturinn að sakast þó mér hafi ekki líkað við hann... það var algerlega "my state of mind"... á góðri íslenskuTounge En núna þegar mér líður svo miklu betur en undanfarin ár... með sjálfa mig og líf mitt eins og það er í dag... þá er ég eðlilega ánægðari með svo margt... eins og til dæmis veturinn... það fylgir auðvitað bara minni eigin vellíðan...Joyful

Hér er glampandi sól og kalt... það marrar í snjónum við hvert skref og sólin blindar mig algerlega... en mér finnst það bara yndislegt... enda á ég hlýtt hús til að fara inn í úr kuldanum...Grin Og ég á svo líka alveg vettlinga... þeir hlýja mér bara ekkert þegar ég gleymi að hafa þá með mér út...Whistling

Vinnan mín verður mér auðveldari með hverri vikunni... er víst ekkert alveg þolinmóðasta manneskjan í öllum heiminum og vildi helst geta talið í mínútum hversu hratt þrekið mitt kemur til baka... en það er víst ekki veruleikinn sem ég lifi í...Tounge Enda sleppur þetta alveg ef ég fæ góð frí inn á milli og reyni að segja stundum NEI þegar ég er beðin að taka aukavaktir... það er svolítið erfitt að læra það... lesist: ég held ég geti bara ekki lært það... og langar kannski ekkert að læra það heldur...LoL

Búin að vera í fríi þessa helgi og nýt þess virkilega... eyddi gærdeginum með eldri syni, tengdadóttur og barnabörnunum í bústaðnum þeirra í gömlu sveitinni minni...Kissing Það var auðvitað frábært, en mikið svakalega var kalt þarna uppi í heiðinni... samt er þetta ekkert svo langt uppfrá...Tounge

Sunnudagur til sælu passar alveg við þennan sunnudag hjá mér... væri óskandi að allir gætu sagt það sama...Smile

Hafið það eins gott og mögulegt er... þangað til næst...HeartWink

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dagný

Sól úti, sól inni.... Gleðilegan sunnudag vinkona :o)

Dagný, 18.3.2012 kl. 12:30

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Dagný mín: Þakka þér og sömuleiðis mín kæra

Jónína Dúadóttir, 18.3.2012 kl. 12:36

3 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Hér er búið að vera grátt og blautt í allan dag, hefði frekar viljað hafa snjó En sólin skín inni hjá mér og ég búin að koma helling af lærdóm í verk í dag, bráðum verð ég búin að ná upp því sem ég er sein með meira að segja...

Knús á þig og þína krúttilegu fjölskyldu

Jóhanna Pálmadóttir, 18.3.2012 kl. 19:38

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jóka mín: Þú ert dugleg stelpa... svona á að gera þetta...

Knús til baka elskan og takk fyrir knúsin á mig og mína krúttlegu fjölskyldu...

Jónína Dúadóttir, 18.3.2012 kl. 22:23

5 Smámynd: Ragna Birgisdóttir

Yndislegust alltaf snjókornssólargeislinn minn:)

Ragna Birgisdóttir, 20.3.2012 kl. 12:25

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ragna mín: Sömuleiðis takk....

Jónína Dúadóttir, 20.3.2012 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband