Gleðilega nýja árið 2013...

... fór vel af stað hjá mér og vonandi hjá ykkur líka... ef það hefði ekki verið fyrir flugeldana þá hefði ég tæpast tekið eftir því að það voru áramót... enda bara að vinna eins og venjulegaGrin Vann samt ekki eins mikið og ég hefði getað núna um hátíðina... en það eru víst fleiri í vinnu þarna sem vildu líka fá einhverjar vaktir...Wink En ég held ég sé nú samt búin að vinna mér inn fyrir smá jólafríi um næstu jól... sem ég hef hugsað mér að eyða í Gautaborg hjá heittelskaðri einkadóttur minni, tengdadóttur og tengdadótturdóttur... !InLove

Skrapp til læknis milli jóla og nýjárs... fer ekki nema ég virkilega neyðist til þess og núna virkilega neyddist ég til þess... búin að finna svo mikið og lengi til í öðru hnénu...Pinch Læknirinn skoðaði hnéð vel og vandlega og spurði svo hvenær ég hefði meitt mig... "Fyrir svona *þmfndrsm* síðan" sagði ég... "Ha ?" sagði læknirinn og ég endurtók sömu setninguna...Halo "Ég heyri ekki hvað þú segir" sagði læknirinn... "Fyrir svona þremur árum síðan" sagði ég þá...Whistling Þá fór hann að hlæja og sagði: "Já og þú ert bara komin strax"... fyndinn...Tounge Hann vildi fá mynd af þessu fína hné og lét mig svo líka fá ávísun á sjúkraþjálfun og bólgueyðandi többlur... vesen...Sleeping Búin með többlurnar og er alveg að verða búin að ákveða að fara kannski að verða mér fljótlega úti um sjúkraþjálfun...Cool  

Notaði svo fyrsta frídaginn á nýja árinu... síðasta föstudag... til að fara í röntgen. Eins gott að hver mynd tók ekki langan tíma, vegna þess að alltaf þegar mér var sagt að vera nú alveg, alveg kyrr þá hélt ég niðri í mér andanum...Grin Fór að pæla í þessu eftirá... ég geri þetta alltaf... held niðri í mér andanum ef ég á að vera alveg kyrr... eða er að vanda mig svakalega... eða eitthvað er að fara að gerast sem ég bíð eftir... eins gott ég þurfi ekki að bíða mjög lengi... ég gæti kafnað... !Tounge

Dagarnir fara eins og venjulega í að vinna og prjóna og slugsa... og láta mér líða vel á allan hátt... alltaf annað slagið að losa mig við eitthvað sem veldur mér vanlíðan... andlegri... ekkert sem ég segi endilega frá opinberlega... nema bara því að mér líði mikið betur...Wink

Annars bara ferlega góð inn í þetta fína ár 2013... og vona að þið séuð það líka...SmileHeartSmile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragna Birgisdóttir

Ragna Birgisdóttir, 6.1.2013 kl. 12:48

2 identicon

Já, þú ert svo mikil læknakjelling... hehe  
2013 verður gott ár, ég er alveg viss og ef við höldum áfram jákvæðinni, bjartsýninni og að hafa vit á að vera til þá mun allt fara að óskum.
Við erum nefnilega öll svo dýrmæt, hvert á sinn hátt og fólkið sem er í kring um okkur auðvitað lang dýrmætast . .  enda fólkið okkar  (og eðlilega lang líkast okkur... )
Því....að sjálfsögðu umgöngumst við bara fólk sem veitir okkur gleði og lífsfyllingu af því að við reynum að gera slíkt hið sama... ekki satt?
Takk fyrir að vera í mínu lífi.... 

Hóffa (IP-tala skráð) 6.1.2013 kl. 12:59

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ragna mín:

Jónína Dúadóttir, 6.1.2013 kl. 13:04

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hóffa mín: Vildi að mér tækist að orða hugsanir mínar eins vel, fallega og skemmtilega eins þú getur alltaf... til dæmis: "Því....að sjálfsögðu umgöngumst við bara fólk sem veitir okkur gleði og lífsfyllingu af því að við reynum að gera slíkt hið sama... " Allt sem þú skrifar hérna er eins og talað út úr mínu hjarta...

Þakka þér sjálfri... 

Jónína Dúadóttir, 6.1.2013 kl. 13:11

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðilegt nýtt ár elskuleg.  Vonandi batnar þér fljótt og vel í hnénu, hressandi pistill eins og þín er von og vísa.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.1.2013 kl. 14:42

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ásthildur mín: Þakka þér fyrir mín kæra... og gleðilegt nýtt ár til þín og þinna 

Jónína Dúadóttir, 6.1.2013 kl. 16:55

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.1.2013 kl. 20:20

8 identicon

Er viss um að þetta ár verður okkur öllum gott. Neita að taka við neinu öðru. Muna svo bara að muna allt árið "anda inn, anda út" þá er minni hætta á köfnun sko. Njóttu lífsins nú þegar fólkið þitt er komið heim. 

Ásrún (IP-tala skráð) 7.1.2013 kl. 09:00

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Farðu vel með hnéð á þér, þeim hættir til að versna illilega ef maður hugsar ekki vel um þau, tala af reynslu, knús á þig krúttið mitt

Ásdís Sigurðardóttir, 7.1.2013 kl. 12:37

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ásrún mín: Tek undir með þér... ekki annað í boði en þetta ár verði gott... og bara betra en það... 

Jónína Dúadóttir, 7.1.2013 kl. 20:53

11 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ásdís mín: Æi... já, þú talar af leiðinda reynslu skinnið mitt...

Knús til baka

Jónína Dúadóttir, 7.1.2013 kl. 20:54

12 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

Þetta ár verður ekkert annað en alveg frábært!!! Og mikið er gaman að heyra að þú ætlir að eyða jólafríinu í "Götet" því þá veit ég að ég fæ líka að hitta þig!!!

Jóhanna Pálmadóttir, 9.1.2013 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband