





Bloggar | 4.3.2008 | 07:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)





Bloggar | 3.3.2008 | 07:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)






Bloggar | 2.3.2008 | 08:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)





Bloggar | 29.2.2008 | 07:22 (breytt kl. 09:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)







Bloggar | 28.2.2008 | 07:59 (breytt kl. 08:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Má ekki vera að neinu í dag, en þarf samt að gera helst allt... Það lítur alveg út fyrir að mjög svo önnum kafin manneskja sé að skrifa hérna, en það er nú ekki alveg rétt. Að vísu er ég búin að skrifa eina auglýsingu fyrir árshátíð og virkilega reyna að opna póst, sem ég þarf að fara yfir, en finn ekki í hvaða forriti hann var saminn, svo ég kemst ekki inn til að prófarkalesa ! Það er margt sem ég ætti svo sem að gera, ýmislegt sem ég þarf að gera og sumt sem mig langar til að gera og eitthvað af öllu þessu verður örugglega að veruleika áður en deginum líkur
Ég er nefnilega alltaf svo varkár í öllum yfirlýsingum til þess að vera ekki að segja eitthvað, sem ég svo get ekki eða vil ekki eða nenni ekki að standa við....
Ég held það geti alveg kallast heigulsháttur eða eitthvað annað svona miður fallegt.... Allt þetta bull er nú eiginlega bara til að breiða yfir þá staðreynd að mig langar svo svakalega til að segja frá því sem nú er um það bil að gerast hjá okkur, en það er ekki alveg búið að gerast þannig að mér finnst ég ekki geta sagt frá því strax... Seinna í dag samt...
Núna ætla ég að fara í það illyfirstíganlega verkefni að reyna að telja sjálfri mér trú um að ég kunni eitthvað að vinna í tölvu og fara í alvöru að finna út úr þessu með póstinn ! Svolítið kannski stórkellingaleg yfirlýsing þegar tekið er tillit til þess, að ég hringi auðvitað bara í mág minn og spyr hann hvernig ég eigi að opna þetta !
Njótið dagsins elskurnar og þá sérstaklega afmælisbarnið hún Birna systir mín !
Bloggar | 27.2.2008 | 07:55 (breytt kl. 08:21) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)







Bloggar | 26.2.2008 | 07:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)






Bloggar | 25.2.2008 | 07:19 (breytt kl. 08:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
... er runninn upp. Til hamingju allar konur ! Við hittum rússneskan kunningja okkar á Glerártorgi í gær og nú veit ég að konudagurinn í Rússlandi er 8. mars og í gær var þar dagur allra karlmanna og þeir halda upp á daginn með því að drekka vodka...... eini dagurinn sem þeir gera það ? Við fórum í leikhúsið í gærkvöldi, á Fló á skinni og skemmtum okkur alveg ágætlega. Þar hitti ég meðal annarra marga fyrrum sveitunga mína, þar búsetta sem og brottflutta, suma hef ég bara ekki séð áratugum saman. Það var gaman að hitta þau öll og minnti mig enn einu sinni á, að þetta fólk er alveg þess virði að gera sér ferð þarna úteftir, þó það sé sannarlega alls ekki "í leiðinni". Læt verða af því einhvern daginn, þegar vel liggur á mér....
Ég fæ stundum skammir fyrir að vera of varkár... þegi t.d. frekar en að eiga á hættu að særa og það er alveg rétt. Það er erfitt að rífast við mig og ef ég reiðist, sem gerist um það bil einu sinni á ári, þá vil ég fara afsíðis og ná mér niður, áður en ég opna munninn og það hef ég vanið mig á, af því að ég er oft allt of fljótfær og hugsa ekkert alltaf of mikið, áður en ég tala Með betri dæmum um það, er þegar gamla konan skammaði mig fyrir að strauja dúkana hennar ekki nógu vel.... það var saumað í þá með ullargarni og það hafði hlaupið þannig að dúkarnir voru alltaf í hálfgerðri kryppu, alveg sama hvernig ég barðist um með helv... strauboltann. Nota bene, mér finnst huuuundleiðinlegt að strauja og hef komið mér upp sérstakri aðferð við það sem mér leiðist að gera, ég vanda mig alveg hreint sérstaklega, akkúrat við það ! Ef þetta hefði verið góð gömul kona, þá hefði ég beðist afsökunar og bara sagt henni að ég væri svo mikill klaufi að strauja og þess vegna gæti ég ekki gert þetta betur. En þessi gamla trunta var alveg ótrúlega ókurteis og alltaf með leiðindi, út af helst öllu og ég leyfði henni að fara í taugarnar á mér þennan dag...
Ég sagði við hana, að það væri greinilegt að dúkarnir væru bara svona illa saumaðir og það væri ekki hægt að gera þetta betur. "Ég saumaði þessa dúka sjálf" sagði sú gamla, bara sár ! Úps... Ninna mín, muuuuuna: ekki skjóta fyrst og spyrja svo.... ! Sem betur fer kann ég að skammast mín og mér leið svo illa út af þessu, að ég bað ekki um að fá að hætta á þessu heimili, eins og ég var búin að hugsa um svo oft og mörgum sinnum. Ég lét mig hafa að vera þarna alltaf hálfsmánaðarlega í tæpt ár, ógeðslega þolinmóð með sparibrosið rækilega límt á andlitið, þó að hún væri stundum að gera mig alveg brjálaða. En svo kom loksins að því að sú gamla fór á elliheimilið og getur dundað sér við að bíta hausana af starfsfólkinu þar...
Ég óska henni alls góðs, en ég sakna hennar ekki baun. Njótið þess að vera í fríi í dag, af því að á morgun þurfið þið aftur að mæta í vinnuna
pé ess: Púkinn hér samþykkir ekki orðið "straubolti" og ég skil hann svooooo vel...
Bloggar | 24.2.2008 | 08:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)






Bloggar | 23.2.2008 | 07:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggvinir
-
jokapje
-
rannug
-
jonhans
-
jogamagg
-
ammadagny
-
hneta
-
asthildurcesil
-
olapals
-
heidihelga
-
brylli
-
juljul
-
naflaskodun
-
majaogco
-
jyderupdrottningin
-
ollana
-
skrifa
-
tofraljos
-
stafholt
-
ringarinn
-
tigercopper
-
engilstina
-
himmalingur
-
einari
-
linka
-
duna54
-
unns
-
skjolid
-
kaffikelling
-
heidamagg
-
heidathord
-
lehamzdr
-
oliskula
-
fjallkona1
-
gattin
-
sur
-
hugskotid
Okt. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar