Þetta er einfalt...

... það eru að koma jólInLoveÞað snjóar hérna á norðurhjaranum og allt svo fallegt og friðsælt... svo yndislegt að koma fram í morgun í myrkrinu og það fyrsta sem ég sá var upplýst jólatréð...KissingOkkar hæstvirti heimilisköttur heldur til á mottunni undir því þangað til það verður tekið niður, hann verður ekkert ánægður þegar pakkarnir eru komnir og taka af honum plássið hans... en það lagast og frá því og fram á næsta ár á hann það alveg sjálfur. Ef hann nennir leikur hann sér að einni og einni kúlu... en annars liggur hann bara þarna undir jólatrénu "sínu" milli þess sem hann drattast fram og borðar, af því að ekki sér þetta lið nú sóma sinn í að færa honum matinn...GetLostÉg er að fara að vinna núna klukkan 9 og vinn til 1... mér finnst það allt í lagi, vinn líka í fyrramálið en fæ svo jólafrí um helgina... sem reyndar er nú bara ósköp venjulegt vaktafrí með fallegu nafniGrinEn núna ætla ég að fara fram í hreina fallega eldhúsið mitt og búa til jólaísinn, bjó til um daginn en hann kláraðist í skötuveislunni... segi eins og með kleinurnar, það þýðir bara ekkert að vera að búa þetta til... þetta klárast alltaf strax...ToungeHér verða friðsæl jól eins og alltaf, synir mínir tveir, tengdadóttir og ömmustelpurnar mínar yndislegu verða hjá okkur í mat í kvöld og annað kvöld... sakna þess að hafa ekki dóttur mína elskulega hjá mér... en hún er á lífi, hamingjusöm í Gautaborg með sinni heittelskuðu, það nægir mér... í biliJoyfulÞví miður eru ekki allir eins lánsamir og ég sendi allar mínar hlýjustu og bestu hugsanir til allra þeirra sem líður ekki vel um jólin...HeartOg að lokum:

 

GLEÐILEG JÓL elskulega fólk og hjartans þakkir fyrir ánægjuleg samskipti í netheimum á árinu sem er að líða... megi nýja árið færa ykkur hamingju, friðsæld og allt annað gott sem hægt er að hugsa sérKissingHeartSmileHeart 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Gleðileg jól til þín og þinna  Þú klappar kettinum og auðvitað Jóa, frá mér

Birna Dúadóttir, 24.12.2009 kl. 09:14

2 identicon

Gleðileg jól.

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 24.12.2009 kl. 11:32

3 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Gleðileg Jól Ninna mín og takk fyrir vinskapinn á árinu sem nú er að renna sitt skeið! Manni fyndist nú ekki tiltökumál að þið fynduð pökkunum annan samastað 

Kv. í Heiðardalinn

Þorsteinn Gunnarsson, 24.12.2009 kl. 13:35

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Birna mín: Sömuleiðis elsku systirBúin að klappa Jóa frá þér... næ kettinum á eftir

Jónína Dúadóttir, 24.12.2009 kl. 16:53

5 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ragna mín: Gleðileg jól

Jónína Dúadóttir, 24.12.2009 kl. 16:53

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Steini minn: Sömuleiðis minn kæriKannski ég hafi bara pakkana í kössunum sem þeir komu í.... eða bara alls ekkiKattarskratturinn verður baara að þreyja... aðfangadagskvöld

Jónína Dúadóttir, 24.12.2009 kl. 16:56

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Gott að það er friðsælt og notó um jólin, hjá köttum sem heimilisfólki  

Jóhanna Magnúsdóttir, 25.12.2009 kl. 10:46

8 Smámynd:

Gleðileg jól Jónína mín   Merkilegt hvað kettir halda mikið upp á jólatré. Hann Snjólfur minn sem er að upplifa fyrstu jólin sín fór beint undir jólatréð um leið og það var komið upp og svo kom ég að honum í gær þar sem hann var búinn að troða sér milli pakkanna til að geta verið undir trénu "sínu"  Vona að þið njótið hvítu jólanna - hér á suðurendanum eru þau ljósgrá

, 25.12.2009 kl. 21:58

9 identicon

Gleðilega hátíð í þinn bæ þó seint sé :)

Fólk á þessum bæ hefur verið mishresst, en allir að standa upp núna samt ;)

Díana Bryndís (IP-tala skráð) 25.12.2009 kl. 23:00

10 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Eigðu góð og gleðileg jól og áramót Jónína mín.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 26.12.2009 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband