Ekki meiri snjó takk... gjöra svo vel... hætt´essu !

Það er búið að snjóa nokkurnveginn stanslaust hérna í 3 daga, allt á kafi og ekkert lát á sýnist mér... fór út og leitaði að krana eða takka til að stoppa þetta en fann engan...Pinch Enda klofa ég snjóinn á skvísustígvélunum mínum... skófatnaður sem er svo sannarlega alls ekki hannaður fyrir snjó og hálku... kuldastígvélin mín eru nefnilega ónýt... síðan í gærWhistling Ég var að koma heim úr vinnunni rétt eftir hádegið í gær og sá að það logaði ekki á stjörnunni okkar fallegu og óð snjóinn upp í klof á stóra sól/snjópallinum til að komast að fjöltenginu og setja hana í samband aftur. Þegar ég kom inn hjálpaði gamli mér að losna við snjóinn af fötunum og tók kuldastígvélin mín og lamdi þeim við... snjórinn fór alveg af þeim, en það gerði líka sólinn undan öðru stígvélinuTounge Þau eru núna úti í ruslatunnu... blessuð sé minning þessara flughálu, mígleku platkuldastígvéla... þau kostuðu líka ekki mikið og sannast enn einu sinni að ef þú ætlar að fá almennilega vöru, verður þú líka að borga vel fyrir hanaGetLost Annar í jólagjöf á mánudaginn... verð að eiga almennileg kuldastígvél eða skóWink Annars ferlega góð og nýt jólanna eins og þau komi aldrei aftur, enda alveg í tveggja daga jólafríi ! Er eiginlega búin að fá nóg af kjöti... vorum með svínakjöt á Aðfangadag, hangikjöt á Jóladag og í dag langaði mig í fisk... eða allavega þá kjúkling eða eitthvað svona létt... en ég lét eftir gamla að hafa hrygg...Shocking Um hádegi á morgun kemur einn sonur hans og fjölskylda, þau borða með okkur í hádeginu... LÆRI...LoL Svo er þetta alveg orðið ágætt og ég vil fá fisk nema á Gamlárskvöld og svo í hverja einustu máltíð alveg fram á vor... þangað til grilltíminn hefstGrin Eigið góðan dag elskurnar mínar allar og gleðilega restSmile Heart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snæfinnur snjókarl.Kveðja norður í jólabæinn:)

Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 26.12.2009 kl. 21:19

2 Smámynd: Erna Evudóttir

Eeeeh er mikill snjór hjá þér ? Hehehe

Erna Evudóttir, 26.12.2009 kl. 21:59

3 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ragna mín: Bestu kveðjur til þín líka kæra vina úr stóra snjóskaflinum

Jónína Dúadóttir, 26.12.2009 kl. 22:56

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Erna mín: Ha... snjór hvað er það ???Komin með upp í háls... og upp á háls... af snjó

Jónína Dúadóttir, 26.12.2009 kl. 22:57

5 Smámynd:

Hvað er snjór???         Eigðu góða rest ljúfan mín og láttu endilega gefa þér nýja kuldaskó - ja eða klofstígvél

, 27.12.2009 kl. 01:30

6 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Dagný mín: Snjór.... það er svona hellingur af hvítu efni sem hleðst upp í stóra skabbla, fallegt út um gluggana... en fegurðin fer algerlega af þessu efni þegar þarf að fara að nota skóbbluna á þaðKlofstígvél skulu það vera... held égKnús úr stóra snjóskabblinum

Jónína Dúadóttir, 27.12.2009 kl. 08:47

7 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

ég var að skoða myndir af þessu snjófargani hjá vini mínum á fésinu, Gvöööööð hvað mig langar heim, svona snjó sér maður ALDREI hérna!!!
Svo væri ekkert vitlaust að fá fisk í hvert mál, alveg sammála því, held ég taki bara kalkúnaafgangana mína og byrji að labba til þín strax í dag svo getur við borðað saman fisk og kalkúna

Jóhanna Pálmadóttir, 27.12.2009 kl. 11:25

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jóka mín: Komdu með kalkúninn og farðu svo með allan snjóinn til bakaKnús

Jónína Dúadóttir, 27.12.2009 kl. 23:33

9 Smámynd: Jóhanna Pálmadóttir

hahaha, já þú vilt sem sagt býtta kalkúna fyrir snjó? It's a deal!

Jóhanna Pálmadóttir, 28.12.2009 kl. 00:12

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Jóka mín:

Jónína Dúadóttir, 28.12.2009 kl. 06:34

11 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 snjórinn er yndislegur....láttekkisonna

María Guðmundsdóttir, 28.12.2009 kl. 14:46

12 Smámynd: Jónína Dúadóttir

María mín: Þú mátt eig´annKnús úr stóra snjóskabblinum

Jónína Dúadóttir, 29.12.2009 kl. 06:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband