Sumarfríið mitt....

... varð að veruleika klukkan 10 í gærmorgunWizard Enda bara rökrétt að breyta veikindafríinu í sumarfrí og sumarfríinu þá í veikindafrí.... bara gera það besta úr því sem hægt erJoyful Svo núna er ég í sumarfríi til og með 20. júlí og ætla aldeilis að njóta þess ! Fékk alveg hreint svakalega flottan sumarfrísfíling strax í gærkvöldi við að horfa á yngsta son spúsa og kærustuna hans, slá alla lóðina okkarInLove Alveg alvöru sumarfrí hjá mérLoL Bara dásamlegt og það sem meira var, þau gerðu það bara af því að þeim fannst það gaman.... líklega af því að þau hafa enga lóð heimaGrin Minn yngsti er aftur á móti í Færeyjum núna, að bíða eftir skipinu til Íslands, eftir 4 vikna flæking um Norðurlöndin. Tollararnir í Færeyjum voru eitthvað að bögga hann í gær við komuna þangað, af því að fíkniefnahundurinn fann einhverja torkennilega lykt í bílnum hans. Þeir fundu auðvitað ekkert, af því að drengurinn er allt of meðvitaður um líf sitt og heilsu, til að vera að fikta með einhvern óþverra og ég segi það ekkert í einhverri mömmulegri afneitun, þetta vita allir sem þekkja hannHeart Svo þeim kom saman um það, tollurunum færeysku, hundinum þeirra og syni mínum að þetta væri mjög  trúlega lykt af hundi, sem stóri bróður hans á og fær oft að koma með honum í bílinnTounge Í dag málum við svefnherbergið okkar, okkur datt í hug að það væri bara gáfulegra að gera það áður en parkettið fer á gólfiðWink Hér er sól og fínt veður og að öllu þessu sögðu, óska ég ykkur alls góðs inn í þennan fína dagSmile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birna Dúadóttir

Til hamingju með sumarfríið,þetta er ekki það versta sem maður hefur prófað,að vera í fríiIngi er bara flottastur

Birna Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 08:16

2 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Neeeeehhh, ertu bara aðeins að læra á þetta með fríið ?Já Ingi er flottastur sko

Jónína Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 08:22

3 Smámynd: Birna Dúadóttir

Jamm fór á fætur sjö,bara svona,bara

Birna Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 08:24

4 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Bara aþþíbara

Jónína Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 08:27

5 Smámynd: Unnur R. H.

Til hamingju að vera komin í frí Ég held bara áfram að sóla mig, eftir heimkomu, á hér hin besta trépall úti og þar er portugal blíða á hverjum degi, þannig að ég hef engu nennt síðan heim var komið

Unnur R. H., 24.6.2008 kl. 08:56

6 identicon

Til hamingju með að geta gert gott úr þessu öllu!Og njóttu þess að vera komin í sumarfrí

Dísa (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 09:17

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Ohhhhh.. öfund, öfund... er alveg græn ..  ..æi, nei auðvitað samgleðst ég þér, til hamingju með að vera komin í fríið, komin í fríið, komin í fríið...dararararara... (syngist með laginu ,,Ég fer í fríið" með Þorgeiri Ástvalds... )

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 24.6.2008 kl. 12:49

8 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Unnur mín: Takk og velkomin heim

Dísa mín: Þakka þér fyrir Reynir maður ekki alltaf að gera það besta úr því sem maður hefur

Ragna mín: Góðan daginn og kærar þakkir

Jóhanna mín: Þakka þér fyrir það, trallalalalalalala

Jónína Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 15:32

9 Smámynd: Helga Auðunsdóttir

Vitið þið hvernig þið sándið yfir netið.. please stelpur vera í takt Til hamingju að vera komin í sumarfrí

Helga Auðunsdóttir, 24.6.2008 kl. 19:03

10 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Helga mín: Vorum við ekki í takt ?Vorum ekkert búnar að æfa sko....  Þakka þér fyrir heillin

Jónína Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 19:23

11 Smámynd: Heiður Helgadóttir

 Thumbs UpEr ekki ósköp notalegt að vera bara í sumarfríi, og njóta þess að vera heima í nýja eldhúsinu, og laga mat handa kallinum, og kisunni Lúkasi. 





Heiður Helgadóttir, 24.6.2008 kl. 20:32

12 Smámynd: Erna Evudóttir

Er Ingi flottastur tha ad fara heim med sömu ferd og vid?

Erna Evudóttir, 24.6.2008 kl. 22:03

13 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Hann fer í ferjuna heim á morgun, held ég

Jónína Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 22:45

14 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Heidi mín: Það er langflottast

Jónína Dúadóttir, 24.6.2008 kl. 22:45

15 Smámynd: Erna Evudóttir

Ja ferdin sem vid aetludum med

Erna Evudóttir, 24.6.2008 kl. 23:54

16 Smámynd: Birna Dúadóttir

Ingi hefur nú líka alltaf verið á undanOg Erna þá,á eftir

Birna Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 00:12

17 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Staðreynd sem sannast núna

Jónína Dúadóttir, 25.6.2008 kl. 07:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband